24.4.2008 | 19:40
Að fá greitt fyrir að nota þjónustu!
Ykkur finnst þetta eflaust hljóma afar ótrúlega en svona er nú markaðurinn hérna í Flórida í dag. Byggingaraðilar keppast um hylli okkar fasteignasalanna og bjóða okkur allskonar bónusa ofan á hefðbundin umboðslaun. Síðan ég hóf starf sem fasteignasali árið 2000 hafa umboðslaun að jafnaði verið í kringum 3% fyrir að koma með kaupanda, í dag er hæsta tilboðið 8% umboðslaun og 30,000 USD bónus til mín. Með framangreindu tilboði fær kaupandinn 50,000 til 70,000 USD afslátt ásamt 6,000 USD upp í kostnað. Lægsta tilboðið í dag er 3% umboðslaun og 3,000 USD bónus. Eins og við öll vitum koma umboðslaunin úr verði eignarinnar og eru í raun greidd af kaupandanum þó svo að byggingaraðilinn sé að bjóða okkur þessar greiðslur. Þess vegna hef ég ákveðið að endurgreiða stórann hluta og í mörgum tilfellum allar umframgreiðslur til kaupandans. Sem dæmi þá fengu Sigurvin og Sonja 23,760 USD endurgreitt, Ingólfur og Margrét fengu 3,000 USD. Þetta á eingöngu við ef keyptar eru nýjar eignir beint frá byggingaraðila, hús í endursölu eru flest með hin hefðbundnu umboðslaun. Ef við skoðum hvað veldur þessum tilboðum byggingaraðilanna þá er það augljóst að lágt gengi dollars og hátt gengi Evrópu gjaldmiðla, hefur skekkt verðskin svo mikið að þetta er hægt. Ef þið eruð að hugsa um kaup á fasteign í Flórida munið að spyrja um alla hluti áður en þið veljið fasteignasala til þess að vinna með.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Ja það er eins gott að leita til réttra aðila ef maður er í fasteignahugleiðingum í Flórída.
Hinrik Olsen (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 11:36
Sæll Pétur,
Ég hef verið í sambandi við fasteignasala vegna fasteignar í Village Walk Lake Nona. Ekki hefur verið minnst á möguleikann á þessum afslætti eða endurgreiðslu. Eru ekki allir fasteignasalar að bjóða þessi kjör ? Ert þú kannski með eignir á þessu svæði á þínum snærum og ef svo, hversu mikinn afslátt væri hægt að fá þar ?
Takk, takk,
Esther
Esther (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 15:53
Ester, í Village Walk, Lake Nona færðu frá $6,000 til $10,000 fyrir að nota Víkingasveitina sem þinn fasteignasala. Mér vitandi erum við einu fasteignasalarnir á Mið Flóridasvæðinu sem bjóðum afslætti. Það er gott úrval af eignum til í Lake Nona og nágrenni.
Pétur Sigurðsson, 26.4.2008 kl. 02:09
Okkur hjónin langar til að koma á framfæri nokkrum orðum varðandi reynslu okkar af Víkingasveitinni. Við vorum að leita okkur að fasteign í vetur, þegar við vorum svo heppin að komast í samband við einn úr sveitinni þ.e Pétur Sigurðsson. Hann lá ekki á liði sínu við að kynna fyrir okkur alla möguleika, og þjónustulund hans er óbilandi. Þjónusta veitt umfram væntingar og ávallt stutt í bros og hlátur. Allar tímasetningar og áætlanir stóðust fullkomlega. Ókunnug á Flórída verðum við hjónin fullkomlega örugg á ferðum okkar á nýjum heimslóðum, eftir að hafa eignast Pétur fyrir vin. Til hans megum við leita í framtíðinni, það er líka innifalið í kaupunum . Takk fyrir þessa frábæru upplýsinga- og fróðleikssíðu, og gaman að sjá fjölskylduna líka. Takk fyrir góða viðkynningu. Sigurvin og Sonja.
Sigurvin og Sonja (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 20:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.