Að fjárfesta í tímasprengju!

Tifandi tímasprengja Það er mikið um að Íslendingar fjárfesti í húseignum í Flórída, sumir til þess að flýja veturinn og veðrið á Íslandi aðrir sem hreina fjárfestingu.  Margir af þessum löndum okkar leigja síðan út húsin þegar þeir eru ekki að nota þau, leigan hjálpar við rekstrakostnað og afborgun af lánunum.  Það sem furðar mig er að stór hópur af þessum fjárfestum leyfir sér svo að leigja húsin út án nokkurra heimilda og í andstöðu við skipulag.   Hér í Flórída er skýrt tekið fram í skipulagi hverfanna hvað er heimilt og hvað ekki, jafnframt eru svipuð ákvæði í lögum húseigendafélaganna í hverfunum.  Frístundabyggð eða “Zoned for Short Term Rental” eru hverfi sem leyfa skammtímaleigu, skammtímaleiga er skilgreind sem leigutími sem er styttri en sex mánuðir.  Svo er það sú staðreynd að það þarf heimild frá sýslunni og fylkinu til þess að reka gistiheimil í Flórída ásamt því að það leggst söluskattur og hótelskattur ofaná alla gistingu hérna. 

Að sleppa því að skrá eignina og skila af henni gjöldum er eins og þú sért að fjárfesta í TÍMASPRENGJU það er bara tímaspursmál þangað til að einhver kvartar yfir misnotkun á eigninni eða að þú lendir í skoðun hjá skattinum.  Ef þú lendir í höndunum á yfirvöldum mátt þú vera viss um að eignin verður sett að veði þangað til þeir verða ánægðir og hvað varð þá um fjárfestinguna þína.  Við hjá Víkingasveitinni leggjum mikla áherslu á að viðskiptavinir okkar njóti eignanna sem við aðstoðum þá við að kaup, meðal annars með því að tryggja að hverfin sem þeir kaupa í leyfa þá notkun sem þeir eru að hugsa um og að fjárfestingin sé eins örugg og mögulegt er.  Aftur á móti höfum við lent í því að viðskiptavinir sem vildu og ætluðu sér að vinna ólögleg, gufuðu upp eftir að við létum þá vita að við myndum óska eftir því að þeir undirrituðu yfirlýsingu þess efnis að við hefðum upplýst þá um notkunar heimildir í hverfinu.  Ástæðan fyrir svona yfirlýsingu er að tryggja að ekki verði sagt um okkur að við hefðum sagt að þetta væri í lagi.  

Ef þið hafið áhuga á að vita meira um þessi mál þá getið þið smellt hér.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband