5.2.2010 | 15:43
Er Englafæði svarið sem Íslenskar fjölskyldur bíða eftir?
Við lestur fjölmiðla á Íslandi er áberandi hversu slæm staða margra fjölskyldna er, sú staðreynd að ásókn í aðstoð frá Mæðrastyrks nefnd eykst um 50% milli ára og greinar og blogg um aðgerðaleysi stjórnvalda til hjálpar heimilunum í landi er hvatinn að þessu bloggi mínu.Hér í Bandaríkjum Norður Ameríku hafa margar Kirkjur og trúfélög sameinast til aðstoðar heimilunum með því að bjóða þeim til kaups mat á kostnaðarverði. Þetta hófst í Monroe sýslu árið 1994 rétt fyrir utan Atlanta í Georgia. Verksmiðjum í sýslunni var lokað og fólkið missti atvinnuna, Prestarnir Joe og Linda Wingo fundu mikið til með söfnuði sínum sem ekki hafði til hnífs né skeiðar og lifði aðallega á matarkortum frá Alríkinu, þau ákváðu að reyna að hjálpa fólkinu til þess að drýgja þessa peninga. Þess vegna stofnuðu þau Angel Food Ministries og hófu dreifingu á matvælum til 34 fjölskyldna, fljótlega óskuðu aðrar kirkjur eftir samstarfi og nú dreifir Angel Food Ministries mánaðarlega matvælum til 500,000 fjölskyldna í 44 fylkjum í Bandaríkjum Norður Ameríku.Þessi starfsemi er rekin án hagnaðar og greiða viðskiptavinirnir einungis kostnaðarverð vörunnar, öll dreifing fer fram einu sinni í mánuði í safnaðarheimilum og er unnin í sjálfboðavinnu. Með þessu fyrirkomulagi fá fjölskyldurnar matvöruna næstum því á heildsölu- eða verksmiðjuverði og drýgja þar með matarpeninga mikið.
Smellið hér til að komast á heimasíðu Angel Food Ministries.
Smellið hér til að skoða matseðil mánaðarins.
Meginflokkur: Vinir og fjölskylda | Aukaflokkar: Fjármál, Trúmál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 16:18 | Facebook
Athugasemdir
Ég veit ekki hvort þetta verður tekið upp hér á landi, en þörfin er fyrir hendi. 50% heimila í landinu ná annað hvort ekki endum saman eða gera það með herkjum. Fyrir jólin sneru 900 fjölskyldur sér til hjálparsamtaka, þar sem þær settu í fyrirrúm að greiða af lánum sínum frekar en að hafa mat á borðum. Ég vona að stjórnvöld vakni af dvalanum áður en það er um seinan.
Marinó G. Njálsson, 6.2.2010 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.