14.8.2011 | 18:26
Þannig að þeir sem eru að leigja út eru að maka krókinn?
Ég velti því fyrir mér, hvað vakir fyrir blaðamanni sem spyr á þennan hátt? Er hann að búa til frétt? Er hann að reyna að hafa áhrif á frétt? Er hann sjáfskipaður neytendafrömuður? Eða veit hann ekki hvað hann er að fjalla um?
Ég er Fasteignasali í Flórída og vinn mikið með fjárfestum sem kaupa og leigja út eignir. Alltaf áður en þeir kaupa þá reiknum við út hver mögulegur hagnaður (að maka krókinn) gæti orðið af fjárfestingunni. Það er viðmiðunarregla hjá flest öllum fjárfestum að fjárfestingin skili 8-12% hagnaði, svo eru nokkur dæmi um að mér hafi tekist að finna eignir sem skila meiri arði. Þegar það tekst þá er mér klappað á bakið og mér er sagt að mér hafi tekist vel til.
Menn verða að skilja það að eiga og leigja út fasteign er eins og hver annar atvinnuvegur, hann þarf að skila arði. Fjárfestarnir (atvinnurekendur) þurfa að fá ávöxtun (tekjur) af þeim fjármunum sem þeir leggja í eignina (fyrirtækið) ef það gerist ekki, þá fara þeir bara eitthvað annað með fjármagnið sitt.
Síðan verða menn líka að skilja að leigusala er áhættusöm, því miður er stór hluti leigjanda sem skilur ekki viðhaldsþörf og kann ekki umgengni við fasteignir. Svo því miður eru nokkrir sem svíkjast undan því að borga leiguna og sitja sem fastast. Ég gæti haldið lengi svona áfram og talið upp áhættuna við að leigja út eignir en mun ekki gera það.
Spurningin sem blaðamaðurinn að mínu mati ætti að velta fyrir sér er frekar: Hvað er það í kerfinu sem veldur því að húsaleiga á Íslandi þarf að vera meira en tvöfalt hærri en hér í Flórída. Er það kannski kostnaðurinn við fjármagnið og vísitölutrygging lána? Er það kannski réttarkerfið það tekur of langan tíma að koma út leigjanda sem ekki greiðir? Er það kannski skattaumhverfið? Ég hef það á tilfinningunni að leigusalarnir séu ekki að maka krókinn.
|
Leigan hækkar og hækkar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook











Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.